Katharine McPhee og Nick Cokas eru að skilja.
Talsmaður leik- og söngkonunnar sagði við People:
„Eftir sex ára hjónaband hefur Katharine McPhee sótt um skilnað frá Nick Cokas. Þau hafa ekki búið saman undanfarna mánuði og munu halda áfram að vera vinir. Þau biðja fólk um að virða þeirra einkalíf á þessum erfiðu tímum.“
Þessi tilkynning kemur sjö mánuðum eftir að McPhee sást kyssa leikstjóra Smash, Michael Morris.
McPhee og Cokas giftu sig árið 2008, nokkrum árum eftir að hann hvatti hana til að taka þátt í American Idol þar sem hún endaði í öðru sæti í fimmtu seríu af þáttunum vinsælu.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.