Katharine McPhee heldur því fram að hún og eiginmaður hennar hefðu verið hætt að búa saman þegar hún var ljósmynduð kyssandi leikstjóra Smash á síðasta ári.
Í skilnaðarskjölum kemur fram að þau hjónin hafi hætt að búa saman frá og með 13. mars í fyrra, sem var sjö mánuðum áður en hún og Michael Morris sáust kyssast.
McPhee og eiginmaður hennar tilkynntu á dögunum að þau væru að skilja.
Þau reyndu um stund að bjarga hjónabandinu en… miðað við það að þau eru að skilja tókst það greinilega ekki.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.