Kate Moss klikkar aldrei. Er ein flottasta skutlan í fyrirsætubransanum, ekki til hroki í henni og svo er hún mjög kurteis.
…ég get kvittað fyrir það því ég hef verið svo heppin að hitta hana í gegnum starf mitt erlendis.
Hér gefur að líta ótrúlega fallega myndatöku, töff samblöndu af flottum fatnaði og myndum. Mig langar í allt sem hún klæðist þarna….kjólana, leðurstígvélin, jakkana, úff myndi jafnvel ganga um nakin með kórónuna sem hún er með á höfðinu.
Myndatakan er tær snilld hjá ljósmyndaranum Craig McDean.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.