Á morgun þann 29 október sendir Kate Moss splunkunýja jólafatalínu sína beint í verslanir Top Shop.
Við erum svo heppnar að vera með fyrstu myndir af fatalínunni sem er hönnun fyrirsætunnar Kate Moss -en hún notar eigin fyrirsætuhæfileika til að sýna fötin -tveir fyrir einn.
Ég verð að bæta við að hár, förðun, myndataka og lýsingin er snilldarleg gerð.
Smelltu til að stækka myndirnar og á esc til að hætta:
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.