Hertogaynjan af Cambridge er án efa glæsileg kona. Nú hefur breska konungshöllin tilkynnt heimsbyggðinni að Kate sé ófrísk að nýju og því sé von á prins eða prinsessu á næstunni.
Á fyrri meðgöngu hennar Kate tók ég eftir hversu einstaklega glæsileg hún var. Alltaf óaðfinnanleg til fara og hreinlega geislaði.
Kate er auðvitað með stílista, hárgreiðslufólk og förðunafræðina á sínum snærum til þess að útlitið sé fullkomið. Þrátt fyrir það finnst mér gaman að fylgjast með henni og stílnum hennar því á vissan hátt er hún svo jarðbundin og flott. Það eru a.m.k. ekki margir innan bresku konungsfjölskyldunni sem versla sjálfir í matinn og kaupa sér föt í Topshop! Það gerir Kate!
Svona var stíll hertogaynjunnar þegar hún gekk með sitt fyrsta barn…
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com