Kate Middleton er þekkt fyrir að geta skipulagt góð partý og nú er hún þegar byrjuð að plana veislu fyrir bróður eiginmanns síns, Harry, sem verður þrítugur þann 15 september.
Að sögn kunnugra verður veislan ekkert barnaafmæli, ónei.
Dirty Thirty afmælið mun verða haldið með “næturklúbbaþema” en húsið verður fyllt af kynþokkafullum dönsurum og veitingarnar munu fljóta.
Þá ætlar hún að safna saman gömlum og fyndnum myndum af Harry, meðal annars myndum þar sem gömlu kærustunum hans verða gerð góð skil en hann er óttalegur villingur blessaður og hefur átt þær ófáar í gegnum tíðna.
Ekki nóg með það, Kate er svo hrekkjótt að hún hefur þegar boðið einhverjum af hans fyrrverandi, m.a. Chelsea Davy og Cressida Bonas, í partýið, sem og Camillu Thurlow, dömunni sem hann er að hitta núna en þau voru saman í siglingu ásamt vinum hans í St. Tropez fyrir skemmstu.
Hvernig gæti þetta klikkað?
Kunnugir segja að Harry sé alveg góður með að hafa fyrrverandi kærustur í veislunni og líklegast munu þær ekki slá hendinni á móti því að mæta til veislu í Kensington höll, þó það gæti kannski farið illa í þær að sjá hann með þeirri nýjustu. Maður veit ekki.
Kate er þó meiri fagmaður en svo að hún fari að til að bjóða gestum sem eru líklegir til að fara með eitthvað drama í gang svo eftirvæntingin ku vera mikil hjá Harry og vinum hans.
Vonum bara að einhverjar skemmtilegar myndir leki úr þessu partýi… 😉
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.