Hertogaynjan Kate Middleton og eiginmaður hennar Vilhjálmur bretaprins mættu saman á rauða dregilinn í London í vikunni og voru hjónin glæsileg að vanda.
Kate klæddist kjól frá Jenni Packman og skóm frá Jimmi Choo við, kjóllinn var síður og silfurlitaður og hertogaynjan er stórglæsileg sjö vikum eftir barnsburð – Hún geislaði á rauða dreglinum!
Kate lét hafa eftir sér í viðtali á dögunum að Georg litli væri yndislegur, hann svæfi og fengi sér að borða til skiptis og hún ætlar sér að njóta þess að vera með honum þegar hann er svona lítill því hún veit hversu hratt lítil börn stækka og segir því mikilvægt að njóta hvers augnabliks í núinu.
Vilhjálmur hefur tekið þá ákvörðun að hætta í hernum til þess að geta sinnt sínum konunglegu skyldum betur og einnig til þess að geta eytt meiri tíma með Kate og Georg.
Kate er stórglæsileg kona og frábær fyrirmynd, því verður ekki neitað. Það er gaman að sjá hvernig ytra áreiti virðist ekki trufla hana en hún er hundelt af papparössum hvert sem hún fer.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig