Kate Middleton var sérlega glæsileg í teboði sem drottningin hélt á dögunum.
Kate var í gulri kápu og með stóran hatt en það er víst það heitasta í teboðum drottningarinnar. Kate virtist skemmta sér vel og spjallaði við gesti og gangandi.
Þetta teboð var á engu venjulegu stærðarkalíberi en í þarna voru meðal annars Ólympíufarar og fleiri sem komu að Ólympíuleikunum en gestirnir voru um 8000 talsins. Spurning hvort það er viðeigandi að kalla þetta “boð”?
Fyrir herlegheitin pantaði drottningin hvorki meira né minna en 270,000 bolla af tei og 20,000 samlokur og álíka margar kökusneiðar – en hvort sem hún býður átta manns eða 8000 virðist Beta gamla alveg vera “með’etta”.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig