Kate Middleton skrapp í búðina til að versla í matinn eins og við hinar gerum vanalega oft í viku en þegar Kate gerir það þá er það fréttnæmt.
Það sem fjölmiðlum finnst nú helsti fréttamaturinn í því að Kate er að versla í matinn er að það er ekki að sjá á henni að hún hafi eignast barn fyrir um mánuði síðan. Kate var í röndóttum bol, svörtum buxum og flatbotna skóm, með hárið í tagli og var hreinlega eins og við hinar þegar við förum í búðina (fyrir utan alla papparassana) en Kate er fylgt hvert fótmál ef hún fer eitthvað út fyrir húsið sitt.
Vinir hertogaynjunar segja að hún hafi ekkert gert til þess að léttast, hún sé enn með Georg litla á brjósti, njóti þess að vera mamma og eiga gæðastundir með syni sínum. Kate er ekki í “megrun” og helsta hreyfingin sem hún hefur stundað eftir að hún átti er Jóga. Greinilega góður lífsstíll á dömunni.
Georg litli dafnar vel að sögn Williams. Hann lætur þó hafa mikið fyrir sér og sefur ekki mikið en finnst gott að borða. Hann ku einnig alltaf vera síbrosandi.
Kate er greinilega að njóta þess að vera mamma en núna búa Kate og William í Anglesey á meðan það er verið að gera upp íbúðina þeirra í Kensington höllinni. Það væsir semsagt ekki um litlu konungsfjölskylduna.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig