Hertogaynjan af Cambridge, Kate Middleton, mætti á íþróttahátíð í Bretlandi í vikunni og tók létta blaktakta fyrir krakkana við mikinn fögnuð.
Kate sýndi nokkra vel valda takta þegar hún tók smass en það sem vakti mesta athygli áhorfenda var ber mallakúturinn sem kom í ljós þegar hún sýndi tilþrif sín, það er alls ekki að sjá að hún hafi verið að eignast barn fyrir þremur mánuðum síðan.
Það hreinlega geislar af Kate þessa dagana og augljóst að móðurhlutverkið hentar henni vel. Kate virtist skemmta sér konunglega á samkomunni en hún sagði við þetta tilefni að hún hefði sjálf æft blak á sínum yngri árum.
Kim Kardashian sýndi á sér bossann í gær í efnislitlum fötum eftir að hafa grennt sig um 20 kg með því að fara á Atkins kúrinn. Kate hefur áreiðanlega ekki þurft að hafa eins mikið fyrir því að hoppa aftur í sama formið enda eru þær með ólíka líkamsbyggingu, og hreint gjörólíkar manneskjur.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig