Frægasta barnið í heiminum sem er enn ófætt er væntanlegt í heiminn í júlí næstkomandi.
Samkvæmt fregnum frá vinum hjónanna Kate og William mun barnið fæðast þann 13.júlí næstkomandi. Hjónin buðu vinum sínum í grill á dögunum og var þetta umtalað í veislunni.
Kate geislar á meðgöngunni og kúlan hennar fer ört stækkandi. Harry kjaftaði frá kyni barnsins um daginn en enginn hefur staðfest að drengur sé á leiðinni.
Mikil spenna er að fyrir komu erfingjans og það verður eflaust kátt í höllinni í júlí enda sá fyrsti af sinni kynslóð kóngafólksins.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig