Kate Middleton er hundelt hvert sem hún fer og loksins farið að glitta í kúluna hennar sætu.
Hertogaynjan var á leiðinni í heimsókn í barnaskóla í Manchester þegar myndir náðust af henni í fallegum kjól sem sýndi kúluna vel, undanfarið hefur Kate bara sést í þykkum kápum en vorið er í lofti og Kate farin að klæða sig eftir því.
Kjóllin sem hún klæddist er með svokölluðu Erdem munstri og með hálfsíðum ermum en Kate klæddist fallegum támjóum skóm við kjólinn.
Það er meira en nóg að gera hjá hertogaynjunni áður en erfinginn lítur dagsins ljós en Kate er mjög annt um að sinna góðgerðarstörfum og er á fullu að vinna í ýmsum félögum sem snúa að góðgerðarmálum enda má segja að slík iðja sé skyldustarf hjá konum í hennar stöðu.
Svo er gaman að geta þess að fatnaður Kate Middleton var á dögunum valinn sá flottasti og eftirsóknarverðasti af breskum konum en flest sem hún sést í opinberlega selst eins og heitar lummur. Hvað finnst þér, er Kate flottust?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig