Leikkonan Kate Hudson er stórglæsileg í viðtali við Glamour og það er ótrúlegt að þessi kroppur eigi tvö börn!
Kate er afar hamingjusöm þessa dagana en leikkonan er trúlofuð tónlistarmanninum Matt Bellamy.
Þegar Kate er spurð út í það hvort hún treysti fólki þrátt fyrir að vera mjög fræg þá segir hún:
“Ég vel að treysta fólki”.
Kate segir einnig að hún hafi ekkert að fela og geti því treyst fólki, þannig að ef að einhver brýtur traustið þeirra á milli þá skiptir það ekki svo miklu máli því hún leyni engu og á nánast engin leyndarmál.
Kate segir að hún hafi átt vini sem hafi logið að sér, stolið frá sér og talað illa um hana en það skipti samt engu máli, hún heldur áfram að lifa sínu lífi. Það sem hún óttast samt sem áður er að fólk fari að hnýsast of mikið inn í einkalíf barnanna hennar en henni er afar annt um einkalíf þeirra og gerir það sem hún þarf ef aðstæður eru ekki réttar gagnvart þeim.
Kate leikur í Glee núna og hennar karakter er ekki sú skemmtilegasta en Kate segir að sér finnist það einmitt svo skemmtilegt:
“Hún (Cassandra July) er svo skemmtilega kvikindislegur karakter og ég hef lúmskt gaman af því að leika hana. Svo finnst mér alls ekki leiðnlegt að syngja og dansa, það gerir mig afar hamingjusama”.
Kate er í hörkuformi eins og alltaf og hún segir að með því að dansa og stunda Pilates hafi hún komið sér í form aftur eftir fæðingu sonarins Bing, svo tekur það líka á að hlaupa á eftir honum út um allt!
Það virðist sem Kate séu allir vegir færir en þegar hún er spurð að því hvað sé hennar “Everest” og hvað henni finnist erfiðast segir hún:
“Ég hef alltaf verið sú sem fer og gerir hlutina, ég bíð aldrei eftir neinum, mér finnst gaman að upplifa nýja hluti og gera eitthvað skemmtilegt. Það sem er erfiðast fyrir mig hinsvegar er að stoppa og njóta augnabliksins, ég á erfitt með að meðtaka það sem er að gerast og hugleiða en ég er á góðri leið að bæta það”.
Flott, falleg og jarðbundin kona hér á ferð!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig