Leikkonan Kate Hudson segir í desemberútgáfu Harper’s Bazaar að hún eigi ekki alla fínu og flottu kjólana sem hún klæðist á rauða dreglinum.
Kate segir að fólk haldi að allar stjörnurnar í Hollywood eigi fulla fataskápa af flottum kjólum en það sé ekki raunin. Hönnuðirnir lána stjörnunum kjólana fyrir rauða dregilinn og síðan er þeim skilað daginn eftir. Hún hafi persónulega ekki efni á því að kaupa alla þessa kjóla því þeir eru rándýrir!
Kate segist einnig ekki vera mikið merkjafrík en leyfi sér þó annað slagið að eignast eitthvað vandað og dýrt. Hún hugsi þó fyrst og fremst um börnin sín og skólagjöldin þeirra en það getur verið ansi dýrt að hafa börnin í fínum skólum í Bandaríkjunum.
Þrátt fyrir að vera dóttir Goldie Hawn segir Kate að mamma sín hafi ekki alltaf verið í búðum með sig. Hún kenndi henni að fara vel með peningana og hugsa vel um hvort hún þyrfti að eignast þetta og hitt. Kate segir samt að hún hafi verið í kringum marga fræga og notið vissra forréttinda þegar hún var yngri en Goldie og pabbi hennar Kurt hafi alltaf passað upp á að láta frægðina ekki stíga sér til höfuðs.
Flott hjá Kate að vera enn með báða fætur á jörðinni, hún er alltaf brosandi og hrókur alls fagnaðar í viðtölum og það geislar af henni!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig