Það er ekki að sjá á hinni yndisfögru Kate Hudson að hún hafi gengið með og fætt tvö börn í þennan heim en það gerðist þó ekki af sjálfu sér að ná í þennan vöxt.
Hún var algjörlega ‘gordjöss’ að sjá þegar hún mætti á rauðum támjóum pinnahælum, í fjólubláum stuttsamfesting og með eldrauðan varalit við sléttað hárið á tónlistarviðburðinn iHeartRadio í Las Vegas í gær en þar var eiginmaðurinn Matt Bellamy kominn til að spila ásamt mörgum fleirum.
Kate uppljóstraði nýlega leyndarmálinu á bak við tónaðan líkamann en þetta kemur sannarlega ekki af sjálfu sér.
“Ég brenni í svona þrjú korter til 55 mínútur og svo fer ég í jóga eða Pilates, sirka þrisvar í viku,” segir hún. Kate hefur unnið með sama þjálfaranum í um fimmtán ár en sú heitir Nicole Stuart. Þær eru orðnar bestu vinkonur og Nicole dásamar hversu kröftug Kate er í líkamsræktinni.
“Hún er alveg mögnuð manneskja og er í raun mikil áskorun fyrir mig sem þjálfara af því hún er svo mikil íþróttakona. Við skorum sífellt á hvort aðra að standa okkur betur. Hún er alltaf mögnuð þegar kemur að því að æfa.”
Ég efast svo sannarlega ekkert um það því þessi dama er það sem maður kallar ‘drop dead gorgeous’. Falleg eins og mamma sín hún Goldie Hawn en báðar eru líka með glaðlega og flotta útgeislun. Bara æði.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.