Leikkonan hressa og glæsilega Kate Hudson er í viðtali við tímaritið ELLE UK í maí og ræðir þar börnin, fjölskylduna og… samkvæmisdansa.
Kate segist vera miklu meiri mamma heldur en að reyna að vera einhver töffari eða alltaf úti á lífinu. Henni finnst skipta miklu máli að vera góð mamma, góð unnusta og að vera hluti af fjölskyldu. Hún var alin þannig upp og vill að börnin sín fái þannig uppeldi. Hún segir einnig að þau eigi gott líf og peningar séu ekki áhyggjuefni en það er jafnframt mikilvægt að synir hennar átti sig á því hversu gott þeir hafi það.
Kate segir að samband hennar og Matt sé frábært og þau muni gifta sig fyrr en síðar, henni finnst mikilvægt að gifta sig en þau séu ekki búin að plana neitt. Ryder sonur hennar vill fá heljarinnar veislu en fyrir henni er það ekki löglegi hluti hjónabandsins sem er mikilvægur heldur það að vera fjölskylda og merkingin á bak við það sé mikilvægust.
Kate leynir á sér og segist elska samkvæmisdansa. Hún hefur lært cha, cha, cha og tangó og er að láta sauma á sig kjóla til að dansa í! Kate segist elska kjólana og litina og þetta sé svona hennar trít. Hugmyndin á bakvið það að fara út á dansgólfið, hálfnakin í sexý kjól með semalíusteinum sé svo kynþokkafullt!
Kate kemur sífellt á óvart og greinilega alltaf stuð og samheldni í hennar fjölskyldu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig