Ég skoða mjög mikið föt á netinu og finnst því voða gaman að finna nýjar síður með flott föt og skart.
Karmaloop er síða með mjög mikla fjölbreytni í fötum,skóm og skarti. Flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Karmaloop er bæði með kvenna og karlaföt og nokkur merki t.d. Jeffrey Campbell, Betsey Johnson, Cheap Monday og fleiri.
Þar sem fjölbreytnin á fötunum er mikil þarf maður kannski að skoða aðeins meira til að finna eitthvað við sitt hæfi sem getur í raun verið ókostur en mér finnst oft kostur að fatasíður séu ekki bara með einn “stíl” af fötum.
Ég myndi seint teljast til ákveðinnar ‘týpu’, get klætt mig rosalega mismunandi eftir dögum og þessvegna henta svona síður mér vel.
Verðin eru misjöfn á flíkum og skóm, fer eftir merki og þess háttar en í heildina er þetta alls ekki svo dýr síða.
Hérna eru nokkrir hlutir sem ég hefði ekkert á móti að eignast:
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.