Rapparinn Kanye West er mættur til Grikklands tveimur mánuðum eftir fæðingu North West til að kynna nýjustu plötuna sína Yeezsus.
Kappinn virtist þó ekki vera að njóta sín í sólinni og sjónvarvottar segja að hann hafi verið afar vansæll í siglingu og ekki yrt á neinn. Kanye virtist sakna North mikið en hann vill helst ekki sleppa henni þegar hann er heimavið. Kardashian fjölskyldan fór fyrr á árinu í frí saman til Grikklands en þá var Kanye ekki með í för. Kim hitti hann eftir Grikklandsferðina og þau fóru einsömul í rómantíska ferð.
Kim hefur lítið sem ekkert látið sjá sig eftir að North West fæddist en hún birtist þó í stutta stund í spjallþætti mömmu sinnar til að óska henni til hamingju með nýja þáttinn. Kveðjan var reyndar tekin upp löngu fyrir þáttinn og ekki í beinni. Kim og Kanye hafa ákveðið það að selja engum fjölmiðli myndir af North og ætla þess í stað að birta sjálf fyrstu myndirnar af ungu dömunni.
Kim vill alls ekki láta sjá sig úti þessa dagana en hún bætti töluvert á sig á meðgöngunni. Hún vill ekki fara út úr húsi fyrr en hún er komin í,,papparazzi-form” en Kim fór í keisaraskurð og verður því að fara varlega næstu vikurnar. Kanye vill ólmur giftast Kim sinni og að sögn vina vill hann hafa risastórt stórt brúðkaup í París. Aftur á móti vill Kim helst einungis hafa þeirra nánustu ættingja og gifta sig á lítilli eyju, náið og rómantískt.
Ef að Kim og Kanye gifta sig þá verður þetta þriðja hjónaband Kim en fyrsta hjónaband Kanye -ætli að ,,third time’s a charm” verði lukkutalan hennar Kim?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig