Kim Kardashian fór ekki leynt með það að henni leið mjög illa á meðgöngunni og getur ekki hugsað sér að vera ólétt aftur -allavega ekki í bráð.
Kanye vill ólmur að Kim verði ólétt fljótlega, helst á morgun og vill hafa stutt á milli barnanna þeirra. Kim er ekki á sama máli því það eina sem kemst fyrir hjá henni er að komast aftur í fatastærð 8 og fá líkamann sinn til baka eins og hann var áður en hún varð ólétt.
Kim hefur einnig kannað möguleikann á því að fara í lýtaaðgerð en brjóstin hennar stækkuðu töluvert þegar hún var ólétt og enduðu í stærð F en það er tvöfalt miðað vi það sem áður var. Kim finnst brjóstin sín vera farin að síga nú þegar og hefur farið til nokkra lýtalækna í viðtöl og kannað möguleikann á því að láta laga brjóstin.
Kanye er alveg miður sín yfir þessari ákvörðun Kim en mamma hans lést á skurðarborðinu þegar hún fór í fitusog, þegar Kim minnist á það að fara í lýtaaðgerð þá fríkar hann út. Kanye finnst Kim falleg eins og hún er og vill ekki að hún láti laga sig meira til.
Það er greinilega ekki tekið út með sældinni að vera frægur og vera alltaf myndaður í bak og fyrir en ætli Kim þurfi ekki að fara að forgangsraða betur hjá sér? Einbeita sér að barninu frekar en útlitinu, eða hvað?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig