Rapparinn Kanye West lét þau fleygu orð falla í viðtali um daginn að hann væri númer eitt, einfaldlega sá besti í tónlistarbransanum í dag!
Hinn sjálfsöruggi Kanye lét þessi orð ekki duga heldur sagði hann að Kim Kardashian væri sér allt. Hún hefði gefið honum fjölskyldu þegar hún átti North litlu og sé stuðningsnetið hans í lífinu en það var eitthvað sem honum vantaði. Hann segir einnig að það sé notaleg tilfinning að hafa einhvern þannig í lífi sínu sem lætur mann finna öryggistilfinningu. Það sem Kanye finnst best af öllu í sambandinu þeirra er að Kim þurfti ekki á peningunum hans að halda þegar þau byrjuðu saman, hún átti alveg nóg af seðlum sjálf og treysti ekki á það að Kanye myndi borga allt og gera allt fyrir sig. Að hans sögn var það mjög óvanalegt því yfirleitt hafi hann alltaf þurft að borga alltsaman. Þetta fannst Kanye mjög gott og sá að Kim er sjálfstæð kona sem veit hvað hún vill. Kanye stefnir á að fá lög samþykkt vegna papparssanna til að vernda friðhelgi einkalífsins en hann bíður núna dóms eftir að hafa ráðist á ljósmyndara fyrir stuttu. Kanye finnst ótrúlegt að fólk geti komist upp með það að taka myndir af þér hvar og hvenær sem er og fengið fúlgu fjár fyrir það og vill berjast gegn þessu. Rapparinn segir einnig að hann sé mjög sjálfsöruggur þegar hann semji og gefi út tónlist en hann er ekki eins klár á barnabílstólinn: “Þegar tuttugu manns umkringja þig þegar þú ert að reyna að setja barnið þitt í bílinn og ná myndum af þér í basli við stólinn þá byrji margar gagnrýnisraddir að blaðra… Segja að maður eigi að kunna þetta.” Hann biður fólk vinsamlegast að slaka á dómhörkunni enda sé hann að upplifa allt þetta barnastúss í fyrsta sinn og það tekur tíma að læra á það.
Kanye fer von bráðar í tónleikaferð og munu Kim og North ferðast með honum hluta af túrnum en rapparinn er mjög spenntur fyrir því að hafa fjölskylduna með sér á tónleikaferðalagi.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig