Það er greinilega ástæða fyrir því að íslendingar eru alveg til í að fara til Kanada. Kanada er nefninlega hið besta mál eins og sjá má á þessum fallegu myndum sem birtust í kanadíska blaðinu Flare, nú i okt.
Sérstaklega finnast mér kanínuskinns legghlífarnar flottar og svarti víði kjóllinn, sem og treflapeysan eða hvað þetta nú er. Very nice.
Hönnuðurnir eru öll frá Kanada: Joeffer Caoc, Denis Gagnon, Greta Constantine, Andy The Anh, DAvid Dixon, Mikhael Kale og fleiri.
Smelltu á mynd til til að stækka hana upp…
Myndir eftir Max Abadian
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.