Söngvarinn Justin Timberlake er væntanlegur til landsins í ágúst eins og flestir vita en hann og konan hans Jessica ákváðu að fara í smá slökun fyrir tónleikaferðina.
Skötuhjúin skelltu sér í siglingu um Karabíska hafið og nutu þess svo sannarlega að vera í hitanum og sólinni. Justin stundaði jógaæfingar á snekkjunni og frúin fylgdist með enda ekki leiðinlegt að fá að horfa á Justin sjálfan í hinum ýmsu jógastellingum.
Jessica og Justin létu sér ekki leiðast og skelltu sér á sjóskíði en Jessica er mjög mikil íþróttamanneskja og finnst fátt skemmtilegra en að prófa nýjar íþróttir og ögra sjálfri sér. Justin gaf frúnni ekkert eftir og fór líka á sjóskíði.
Jessica er jafnframt hasarkroppur og sýndi bóndanum og öðrum í áhöfninni líkamann í afar efnislitlum sundfötum. Justin er ekkert síðri en hann lét síðar stuttbuxur duga í þetta sinn, en ég meina kommon, -hann hefði nú alveg mátt fara í eitt stykki Speedo skýlu, er þaggi?
Það ríkir mikil tilhlökkun hér á klakanum fyrir tónleikum Justin en stóra spurningin er: Kemur Jessica með?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig