Justin Theroux ætlar að gera kærustuna sína að viðskiptamógul, eða bissnisskonu.
Slúðurpressan í vesturheimi heldur þessu fram en þar segir að leikarinn, sem er 42 ára, vilji tvölfalda innkomu stjörnunnar og aðstoða hana við fjármálin.
Kærastinn veit víst allt um hennar fjármál og er að reyna að gera sitt besta til að auka tekjurnar hennar, fá sem allra mest út úr stöðu hennar og frægð svo að þau geti búið við áhyggjulaust ævikvöld.
Honum finnst að stórstjarnan megi vera talsvert harðari í horn að taka þegar kemur að viðskiptum.
Saman eru þau nú að búa sér til verkefni sem munu sjá til þess að þau fái auknar tekjur í framtíðinni og auknar tekjur í þeirra heimi þýðir hreinlega hellingur af peningum á okkar tungumáli. Hvaða verkefni skyldu það nú vera?
Justin og Jennifer ætla að gifta sig á Hawaii á næstunni en þau trúlofuðu sig árið 2012 og eru sannarlega meðal svölustu para í Hollywood um þessar mundir.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.