Þau hjá Gyðju Collection eru svo sannarlega komin í jólaskap og ætla af því tilefni að opna jólamarkað sem verður aðeins opinn í dag.
Á markaðnum verða góð verð á skóm og fylgihlutum, jafnvel verð sem hafa ekki sést áður hér á landi. Ilmvötn Gyðju Collection verða einnig til sölu og verða þau líka á afslætti. Boðið er upp á smákökur og jólaglögg og ljúfir jólatónar munu hljóma á markaðnum.
Jólamarkaðurinn er að Hæðarsmára 6 í húsnæði Gyðju og verður hann opinn frá kl 15:00-20:00 í dag þann 20. desember.
Hér getur þú séð nánari upplýsingar um jólamarkaðinn.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig