Það eru fáar gjafir jafn kærkomnar í jólapakkann og þær sem við getum notað bara fyrir okkur sjálfar.
Því er nefninlega þannig farið með margar konur að við tímum ekki alltaf kaupa munað fyrir okkur einar og ELSKUM því sérstaklega mikið að fá gjöf sem er ætluð fyrir okkar prívat og persónulegu vellíðan.
:ÓSKALISTI: PJATTRÓFUNNAR
Delice Des Fleurs
Jólalína L’Occitane er innblásin af sælgætisgerð frá Provence sem framleiðir sykurhúðuð blóm og sykurgljáða ávexti sem eru vinsælir eftirréttir á jólum í Frakklandi. Ilmurinn af Délice des Fleur vörunum minnir á ljúffeng sykurhúðuð rósa- og fjólublöð. Ævintýralega ljúft!
Fæst í L’Occitane Kringlunni: Handkrem kr 1.050 -Sturtusápa kr 2.100 – Body lotion kr 3.440 – Ilmur 75 ml kr 5.990 – Ilmkrem kr. 1.280.
________________________________________________________________________________________
Gjafasett frá L’Occitane
Það vilja allar konur eiga gott handkrem og þá sérstaklega mömmurnar. Svo langar okkur alltaf í góða sturtusápu sem lætur okkur ilma vel. Fullkomið að geta valið ilm eftir stemmningu dagsins.
Þrír handaáburðir í öskju 2.950 kr og sett með fjórum tegundum af sturtusápu (75ml) 2.950 kr.
________________________________________________________________________________________
Beyonce Heat Rush
Beyonce Heat Rush sem inniheldur bæði sturtusápu, unaðslegan ilminn og body lotion. Gyðjan Beyonce hefur æðislegan smekk á tónlist, fötum og flestu öðru og ilmurinn hennar sannar það.
Þetta þrennt kostar aðeins 5.499 og fæst Hagkaup, Lyf og Heilsu og Lyfju.
________________________________________________________________________________________
GUESS I´m Yours
GUESS I´m Yours gjafaaskja með sturtusápu, ilmvatni og body lotion. Frábær gjöf fyrir flottar stelpur á öllum aldri og sérstaklega þær sem kunna að meta Guess.
Kostar 6.390 og fæst í Hagkaup, Lyf og Heilsu og Lyfju.
________________________________________________________________________________________
Unglegri húð fyrir hátíðarnar
Blue Lagoon Anti-aging day serum er frábært í jólapakkann. Þetta er áhrifaríkt serum sem dregur úr sýnileika á hrukkum og fínum línum. Veitir húðinni fallega fyllta áferð og dregur fram náttúrulegan ljóma húðarinnar. Virkar sem sannkölluð andlitslyfting innan frá – og íslensk framleiðsla!
Verð 10.500 (30ml) og fæst HÉR.
________________________________________________________________________________________
3 little wonders frá Ole Hendriksen
Töfraþrenna sem styrkir varnir húðarinnar og dregur úr öldrunareinkennum. Hannað af danska húðsérfræðingnum Ole Hendriksen og inniheldur verðlaunavöruna Truth Collagen Serum sem veitir húðinni frísklegan ljóma ásamt dag og næturkremi, sem fága og slétta yfirborð húðarinnar. Fyrir allar húðtegundir og aldur. Frábært fyrir konuna sem er mikið á ferðinni, í ræktinni, eða langar að prófa nýja línu .
Kostar 5.099 og fæst HÉR og í Hagkaup.
________________________________________________________________________________________
Fullkomin húð
Youngblood Starter Kit settið inniheldur allt sem maður þarf til að fá FULLKOMNA húð sem virðist fótósjoppuð. Fullkomin gjöf fyrir konu sem þráir óaðfinnanlega, geislandi húð.
Kostar 6.150 ef þú kaupir HÉR.
________________________________________________________________________________________
Gucci Guilty Intense
Gucci Guilty Intense er ilmur sem sendir þig í sjöunda himinn og þú tekur manninn þinn með. Dásamlega ‘glamúrus’, kvenlegur og kynþokkafullur ilmur sem endist vel yfir daginn og þig mun langa í hann aftur og aftur:
Kostar 9.900 30 ml og fæst í helstu snyrtivöruverslunum.
________________________________________________________________________________________
Mjúkar hendur og léttir fætur
Dekur í fallegri gjafapakkningu sem inniheldur Algae og Silica handkrem sem nærir og verndar húðina og Silica foot and leg lotion sem styrkir og nærir húðina auk þess að kæla, róa og hafa frískandi áhrif á þreytta fætur. Yndislegt!
Jólatilboð 4.900 krónur og fæst HÉR eða í verslunum Bláa Lónsins Laugavegi og í Bláa lóninu.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.