Fyrir stuttu gerði ég þessa týpísku útlistun á ljótum jólapeysum (sjá hér) en nú er komið að flottum jólapeysum eða eins flottum og jólapeysur geta orðið.
Flestar peysurnar fann ég á Pinterest. Nokkrar fann ég í vefverslunum H&M, Primark og River Island. Þá fann ég eina frá Gyllta kettinum í Austurstræti.
Hreindýra og snjókornamunstur virðist vera vinsælt sem og jarðlitir eins og sjá má í samantektinni hér að neðan.
Fallegir jarðlitir og munstur.
Og hér sem hluti af samsetningu
Fallega bleik jólapeysa fyrir skvísur.
Jólapeysa í norksum stíl. Heia Norge. Kósí en töff.
Rauðbrún í klassískum stíl. Úr netverslun H&M.
River Island – Sjá nánar hér.
Úr Gyllta kettinum.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.