Jólin eru líklega sá tími sem flestir leyfa sér aðeins meira af kræsingum en almennt gengur og gerist.
Hér eru nokkrar hugmyndir til að setja alls kyns kræsingar í jólabúning sem krefjast mismikillar þolinmæði og vinnu!
1. Skreyttar piparkökur
Ég hugsa að þetta krefjist dass af bæði vandvirkni og þolinmæði. Þetta er að minnsta kosti örlítið frábrugðið þeim “listaverkum” sem ég málaði á piparkökur á mínum yngri árum.
2. Bráðinn piparkökusnjókall
Piparkökuskreyting sem gæti hentað þeim sem leggja ekki í þessa fyrir ofan.
3. Ávaxtajólatré
Hollustan má ekki allveg gleymast.
4. Súkkulaðihúðaðir sykurpúðar
5. Jólatrés bollakökur
6. Kökupinnar í jólabúning
Rautt glimmer og mistilteinn. Jólalegt og sætt.
7. Rúdólf smákökur
Rúdólf með rauða trýnið – girnilegar súkkulaðibitakökur
8. Rúdólf samloka
Önnur útfærsla á honum Rúdólfi. Smurt brauð og skorið út. Einfalt.
9. Brownie jólatré
Brownie uppskrift, kakan skorin í þríhyrnt form, grænn glassúr ofaná, smarties og jólabrjóstsykur.
10. Heitt kakó með rjóma og skreyttum sykurpúðum
Á köldum vetrardögum er fátt betra en heitt kakó! Þessir kakóbollar eru afar krúttlegir.
11. Piparkökuskreyting á kaffibollana
Þetta kalla ég metnað! Nokkur stykki mini piparkökuhús til að skreyta bollana í boðinu!
Einfaldari útfærsla á bollaskreytingum er auðvita möguleg:
12. Jólakokteill
Það getur verið bráðnausynlegt að fá sér einn kokteil af og til.
Hér er uppskrift af þessum girnilega jólakokteil:
60 ml Smirnoff vodka
60 ml appelsínusafi
90 ml trönuberjasafi
20 ml lime safi
3 tsk sykur
1 stk jólabrjóstsykur til skrauts
Allt innihaldið sett í hristara ásamt klaka. Borið fram í Martini glasi!
Verði ykkur að góðu!
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com