Jólalegt hjá Day Homes en hönnuðir þar eru Marianne Brandi og Kjeld Mikkelsen. Þessar myndir eru teknar í íbúð þeirra í Kaupmannahöfn fyrir tímaritið Living Etc.
Skemmtileg hugmynd að blanda saman gömlum römmum og fallegum kertastjökum saman á arinhilluna, eikar parket og svart-hvít röndött teppi flæða um íbúðina og svefnherbergið mmm… kósí.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.