Við teljum niður til áramóta út desember með stuttum hugleiðingum sem bæta lífið og tilveruna. Út frá þessum hugleiðingum getur þú til dæmis sett þér markmið eða nýjar áherslur fyrir nýja árið framundan.
Byrjaðu nú að njóta líðandi stundar. Hvað er að gerast hjá þér NÚNA?
Núið, eins og við köllum það, er hreint kraftaverk. Það sem þú hefur NÚNA sem þú situr og lest þessi orð, er í raun allt sem þú hefur, allt sem þú getur treyst á. Lífið er að eiga sér stað akkúrat núna.
Hættu þessvegna að hugsa endalaust fram í tímann.
Hættu að hugsa um hvað allt verður frábært í framtíðinni.
Hættu að velta þér upp úr því sem er liðið.
Það sem er að baki verður ekki aftur tekið. Lærðu að njóta líðandi stundar, njóta andartaksins.
Njóttu þess sem er í kringum þig, heimurinn er stútfullur af fegurð og lífið er gott.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.