Á hverjum morgni í desember kl 7:20 heilsum við lesendum okkar með litlum örhugvekjum um lífið og tilveruna. Samskipti við annað fólk og okkur sjálf. Molar sem taka innan við mínútu að lesa en skilja mikið eftir sig. Byrjaðu í dag að elska… og lesa jóladagatal Pjatt.is. Settu þér svo smátt og smátt markmið um betra hugarfar á nýja árinu sem er nú handan við hornið.
Hugsaðu jákvætt, hafðu í huga að útkoman getur alltaf verið góð, jafnvel æðisleg.
Hugurinn þarf að trúa því að hann GETI gert eitthvað áður en ráðist er í verkið. Leiðin til að vinna bug á neikvæðum niðurrifs hugsunum er að þroska með sér hið gagnstæða; jákvæðar tilfinningar og hugsanir sem yfirbuga þessar neikvæðu og eru mun sterkari.
Hlustaðu eftir því hvernig þín innri rödd talar við þig. Er hún neikvæð? Segir hún þér að þú getir ekki gert hlutina? Hættu að hugsa svona. Þaggaðu niður í þessari rödd og láttu hana segja fallega, uppbyggilega og góða hluti við þig.
Segðu þá upphátt í spegilinn inni á baði ef þú þarft þess. Hvað sem er að fara að gerast fókuseraðu á það sem þú VILT að gerist og taktu svo skrefin í rétta átt.
Nei, þú getur ekki stjórnað ÖLLU sem kemur fyrir þig en þú getur sannarlega ráðið því hvernig þú bregst við.
Það er gott og slæmt í lífi okkar allra en hvort við verðum hamingjusöm og fengsæl veltur í öllu á því að hverju við einbeitum okkur og hverju við trúum að geti gerst. Þetta er allt í kollinum á okkur.
Hugsaðu jákvætt
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.