Á hverjum morgni í desember kl 7:30 heilsum við lesendum okkar með litlum örhugvekjum um lífið og tilveruna. Samskipti við annað fólk og okkur sjálf. Molar sem taka innan við mínútu að lesa en skilja mikið eftir sig. Byrjaðu í dag að elska… og lesa jóladagatal Pjatt.is. Settu þér svo smátt og smátt markmið um betra hugarfar á nýja árinu sem er nú handan við hornið.
Byrjaðu að taka fulla ábyrgð á þínu eigin lífi. Þínar ákvarðanir og þín mistök – þú berð fulla ábyrgð. Ef þú gerir mistök, sýndu þá viljann til að bæta fyrir þau.
Annaðhvort tekur þú ábyrgðina á eigin lífi — eða einhver annar gerir það.
Og um leið og þú lætur aðra um ábyrgðina á lífi þínu, þá ertu orðin/n þræll annara manna drauma og hugmynda og þá eru það þeirra draumar sem ráða ferðinni í ÞÍNU lífi. Ekki þínir eigin draumar.
Þú ert eina manneskjan sem getur raunverulega ráðið ferðinni í þínu eigin lífi og þar með útkomunni.
Það verður ekki auðvelt fyrir þig að taka fulla stjórn. Allir þurfa að horfast í augu við margskonar erfiðleika í þessu lífi, en þú og bara þú verður að taka ábyrgð á aðstæðunum sem þú ert í og komast svo yfir hindranirnar sem mæta þér í framtíðinni.
Ef þú velur að taka ekki ábyrgð þá verður líf þitt aðeins tilvist og þú verður farþegi, en ekki bílstjóri, í eigin lífi.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.