Ég fæ aldrei nóg af Johnny Depp, hann er alltaf jafn kæruleysislegur til fara. Það mætti halda að hann grípi bara einhvern fatnað af gólfinu þegar hann rúllar sér fram úr rúminu á morgnana.
Hvað sem málið er þá er Johnny Depp rífandi svalur gaur. Í þessum myndaþætti pósar hann í þvældri skyrtu, farðaður með svartan eyeliner (augun), tattóið er sjáanlegt og axlarsítt hárið er flott.
Rakst eitt sinn á hann ásamt vinkonu minni í London. Þetta var í Notting Hill árið 1999. Ég fékk nett sjokk því mér þótti hann svo skítugur -en samt svo fáranlega heitur. Hann má eiga það að flottur er hann og ótrúlega viðkunnanlegur. Hann brosti glettilega til mín, því ég var alltaf að pikka í vinkonuna eins laumulega og ég gat inni í búðinni..
Hey, sjáðu þetta er Johnny Depp.
Hvar? spurði hún og skimaði í kringum sig -upptekin við að skoða antíkvörur.
Ég var alveg gáttuð? Hvernig gat HANN farið framhjá henni?
Hann stendur við hliðina á mér!
Hver? spurði hún og skimaði kringum sig.
Þar stóð Johnny Depp ásamt tveimur öðrum mönnum! Við vorum öll komin að afgreiðsluborðinu og Johnny stóð beint fyrir framan okkur og hafði greinilega gaman af.
Leikarinn, “Johnny Depp!” gólaði ég.
Við borguðum og hún var enn að spyrja og leita fimm mínútum seinna eftir að við höfðum borgað og afgreiðsukonan pakkað vörunni inn.
Sástu ekki manninn? spyr ég hana forviða því verslunin var það lítil og ég hefði getað tannburstað Depp og hina tvo. Við vorum nánast í fanginu á manninum.
Johnny Depp gekk út úr versluninni og brosti enn þegar hún spurði enn: Ha, hver?
Ég brosti vandræðalega á móti og nikkaði höfðinu varlega í átt að þessum heimsfræga leikara sem gekk hjá með tvo lífverði.
Hún skimaði um á miðri götunni með spurnarsvip og spurði: HVAAARRRR…?
Ég gafst upp en næst þegar ég rekst á hann þá bið ég hann um að pósa með mér á mynd og bið vinkonu mína um að smella af.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.