Eilífðartöffarinn Johnny Depp á ekki gott með að fá gat eða saumsprettu á buxurnar sínar því hann notar aldrei nærbuxur.
Úbbs!
Þetta gerðist t.d. um daginn þegar hann fékk allt í einu svaka saumsprettu á gallabuxurnar sínar. Þá var ekki annað fyrir hann að gera en að ná sér í vel sterkt teip og loka gatinu því annars hefði öll dýrðin blasað við. Svo hélt hann bara áfram að gera það sem hann var að gera.
Atvikið skemmtilega átti sér stað þegar Johnny var að fara að sjá son sinn Jack leika á skólaskemmtun. Hann var kominn fyrir utan skólann þegar hann uppgötvaði þetta allt í einu. Eða eins og hann sagði sjálfur frá:
“Ég áttaði mig á þessu einn morguninn þegar ég var komin í skólann að sjá skemmtun sem strákurinn minn tók þátt í. Hann átti að fara upp á svið að syngja og svona og maður gat auðvitað ekki látið sig vanta. Ég varð að vera kominn á réttum tíma, en var auðvitað á síðasta snúning. Þegar ég var kominn fyrir utan datt mér allt í einu í hug að tékka hvort ég væri ekki örugglega með veskið mitt, renndi hendinni í rassvasann og uppgötvaði þá þessa líka stóru saumsprettu. Ég hugsaði bara djísus kræst! Enda stór saumspretta og engar nærbuxur… það var ekki annað í stöðunni en að loka með teipi og fara á skemmtunina.
Spurning um að splæsa í góðar nærbuxur Johnny? Kannski úr lífrænni bómull?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.