Johnny Depp hefur verið með grasið í skónum á eftir leikkonunni Amber Heard (27) undanfarin tvö ár eða svo.
Amber hefur hinsvegar verið aðeins rólegri heldur en Johnny í sambandinu (þrátt fyrir að hann sé einn eftirsóttasti piparsveinn á jörðinni) og hefur lítið viljað með hann hafa, að minnsta kosti þar til núna, eða hvað?
Amber hefur sést með demantshring á baugfingri og sögusagnir herma að Johnny sé búinn að biðja hana um að giftast sér en hann hefur ekki verið giftur síðan hann var giftur leikkonunni Lorie Anne Allison. Þau giftu sig árið 1983 og skildu 1986 þannig að drengurinn hefur ekki verið í alvarlegum hugleiðingum í tuttugu og eitthvað ár!
Johhny hefur eins og áður sagði verið afar hrifinn af Amber eftir að hann hætti með Vanessu Paradis en Amber og hann hafa verið í sundur/saman sambandi. Þau mættu saman á rauða dregilinn á vikunni en þau hafa lítið sést opinberlega saman fyrr en núna.
Enginn hefur staðfest þessar fregnir en það eru eflaust margar sem munu gráta í koddann sinn ef þetta reynist rétt, hann er soddan sjarmatröll hann Johnny!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig