Hinn síungi töffari Johnny Depp segir í nýlegu viðtali við tímaritið Rolling Stone að hann hafi verið edrú í eitt og hálft ár.
Johhny fór reyndar ekki í meðferð heldur ákvað sjálfur að nú væri kominn tími á smá hlé í drykkjunni en hann er mjög feiminn að eðlisfari og allar samkomur og viðburðir einkenndust af því að fá sér í glas og svo alltaf meira og meira til þess að geta talað við fólkið.
Leikarinn viðurkennir það að svona eigi maður ekki að fara með líkamann sinn en hann drakk ansi stíft og var stundum fullur heilu og hálfu dagana í röð!
Johnny segist þó ekki vera alkahólisti því hann segist ekki hafa mikla löngun í áfengi heldur líti hann frekar á það sem lyf svo að hann róist eða rói sirkusinn í kringum sig niður. Hann er þó greinilega kominn yfir slíka “lyfjagöf” – eða kannski er hann bara hættur að mæta á öll þessi stressandi mannamót?
Vonum bara að honum gangi vel, hvort sem hann drekkur eða ekki… hann á það skilið því hann er svo sætur.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig