Hann er meira en bara bráðmyndarlegur hann Joe Manganiello, leikari úr True Blood en þar leikur hann einn af úlfunum. Í rauninni er hann mikill herramaður sem er svo heppinn að líta afar vel út án fata.
Hann er 196 cm á hæð með dúndur harða magavöðva og karlmennskan lak af honum í True Blood þáttunum. Hann var upphaflega bara ráðinn til að leika í sex þáttum en áhorf rauk upp eftir hans innkomu svo hann var ekki látinn fara.
Joe er rómantískur og bað hann unnustu sinnar á Ítalíu árið 2010 en uppúr því slitnaði fljótlega á eftir bónorðið. Þessi 36 ára gamli leikari lærði drama í Carnegie Mellon og mun leik Stanley Kowalski í A Streetcar Named Desire í Yale Repertory leikhúsinu. Leikarinn sat nýlega fyrir svörum í ELLE Magazine. Hér er það:
Hverri varstu fyrst skotin í? Leiu prinsessu úr Star Wars. Ég hitti Carrie Fisher fyrir nokkrum árum og þegar ég sagði henni að hún hefði verið sú fyrsta sem ég var skotin í þá fór hún fram á að við myndum gifta okkur og búa til raunveruleikasjónvarp í kringum það. Ég er heppinn af hafa sloppið frá þeirri helgi ógiftur.
Hefur þú einhvern tíman beðið konu að fara í Leiu prinsessu búningin fræga fyrir þig? Ég er smá nörd en nei ég er ekki það mikill nörd.
Talandi um búninga, þegar þú varst 16 ára í Pittsburth þá varstu að vinna á bar klæddur sem Kafteinn Morgan til að kynna barinn. Hvernig brugðust konur við því? Í fyrsta lagi þá var ég allt of ungur til að vera að vinna þarna og var þetta í fyrsta sinn sem ég hafði komin inn á bar. Þetta var lærdómsríkt og yfirleitt þá laug ég að stelpunum að ég væri í University of Pittsburgh. Ég sem var ekki einu sinni kominn með ökuskirteini. Mamma keyrði mig alltaf í vinnuna.
Ha, mamma þín keyrði þig í vinnuna? Ég held að hún hafi ekki haft hugmynd um hvað var í gangi. Hún vissi að ég fékk 25$ á tímann. En þessi kvöld sem ég var að vinna þarna voru þau allra bestu sem ég man eftir.
Þú varst í g-streng í Magi Mike. Kanntu núna að meta betur hvað konur ganga í gegnum varðandi undirföt? Það sem er svo fyndið með karlmanns strippara að í dag þá eru þeir ekki í g-streng en já það er afar óþæginlegt að vera í þessari litlu flík. Konur gera allt of mikið af því að vera í einhverju afar óþæginlegu bara fyrir karlmenn og ég kann svo sannarlega að meta það allt. Ég elska konur í háum hælum og ég fíla g-strengi á konum.
Þú varst kallaður Big Dick Richie í þessari sýningu. Væntingar kvenna hljóta þá að hafa verið miklar og fékkstu óskir um að sanna hversu stór “Big Dick Richie” er?
Ó já. Og það er ein af aðal ástæðunum fyrir því að þú tekur þetta hlutverk!
Hefur þér alltaf liðið vel að vera nakin fyrir framan áhorfendur? Nei, alls ekki. Ég leik hlutverk þar sem þess er krafist af mér að vera nakinn og það tekur tíma að venjast því. Ég var eitt sinn í leikriti “off Broadway” í New York þegar ég var í menntaskóla. Þar varð ég að sýna allt og ég var afar stressaður.
Þú trúlofaðir þig fyrir nokkrum árum en það gekk ekki upp. Finnst þér þú hafa sloppið vel frá þessu? Ég vil helst ekki ræða það. Ég vil ekki særa hana. Í dag er ég eins hamingjusamur og hægt er að vera en ef ég hefði haldið mig við bónorðið og gift mig á sínum tíma þá væri ég ekki svona hamingjusamur eins og ég er í dag.
Dæma konur þig frá útlitinu einu eða eru það gáfurnar sem þær sækjast í? Það er útlitið og þá er auðvelt að sjá nákvæmlega hverju þær eru að sækjast eftir.
Ef ég spyrði allar þær konur sem þú hefur farið á stefnumót með hvað myndur þær hafa um þig að segja? Vá, ok. Hvernig svara ég þessu? Ég veit allavega fyrir víst að ég er ekki hræddur um að hitta neina þeirra eða rekast á á götum úti. Ég hef alltaf endað hlutina á góðum nótum eins og herramanni sæmir.
upprunalega viðtalið er HÉR
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.