Jennifer Lawrence sagði í viðtali á dögunum að þættir eins og Fashion Police fengu ungar konur í dag til að líða illa og Joan Rivers er brjáluð!
Joan stjórnar þættinum og lætur allt flakka, þá meina ég allt. Henni er nokk sama um hvað aðrir segja um sig enda viðurkennir hún það fúslega að vera búin að fara í margar lýtaaðgerðir og er eiginlega stolt af því.
Jennifer sagði að þættir eins og Fashion Police væru ekki fyrirmynd fyrir ungar stúlkur í dag þar sem að það er gert út á að setja út á fólk, klæðaburð þeirra, hárgreiðslu, vaxtarlag og svo framvegis.
Joan “Twittaði”: “Það er furðulegt að Jennifer hafi elskað þáttinn okkar á meðan á verðlaunaafhendingum stóð en þá vorum við að hrósa henni í hverri einustu viku. Núna þegar hún þarf að kynna mynd þá finnst henni við vera leggja fólk í einelti”.
Joan hélt áfram: “BÍÐIÐ, ég veit af hverju Jennifer datt í stiganum þegar hún tók á móti Óskarnum, hún féll á sínum eigin hroka”.
Joan er brjáluð krakkar! Það er betra að vera ekkert að rífa kjaft við hana því hún kaffærir fólk á núll einni og er svo sannarlega með munninn fyrir neðan, nefið þrátt fyrir smá lagfæringar á því!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig