Jimmy Fallon (39) er einn af mínum uppáhalds og hann fær alltaf fræga fólkið til að bralla margt skemmtilegt með sér.
Eitt af því skemmtilegasta og magnaðasta sem ég hef séð í þættinum hans var þegar hann fékk leikkonuna Emmu Stone til að taka svokallaða “Lip Sync” baráttu með sér en hún fer þannig fram að þau velja sér lög sem þau “mæma” síðan og útkoman er hreint út sagt stórkostleg!
Jimmy hefur staðið sig vel í þessu áður en Emma gersamlega tekur hann í kennslustund í mæmi og velur alls ekki auðveldustu lögin!
Kíktu á þetta skemmtilega myndband hér fyrir neðan.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=bLBSoC_2IY8[/youtube]Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig