Hin eitursnjalli skóhönnuður Jimmy Choo er næsti gestahönnuður hjá H&M (Aaaaargh… OMG! OMG! OMG!) róa sig…
….og kemur útvalin skólína í nokkrar útvaldar verslanir H&M í nóvember.
Spurning um að leggja fyrir í sparibauk og plana skókaupaferð? Það er nefninlega margt verra en að ganga í skóm frá hinum víðfræga skóhönnuð Jimmy Choo!
Og já á myndinni sérðu skó frá hinni komandi H&M skólínu (ég dey….) og til að lesa meira þá er hér linkur á presssíðu H&M.
Skórnir detta inn í útvaldar H&M verslanir í nóvember og á meðan við teljum niður dagana getum við notið myndanna sem Jimmy Choo lét skjóta af fyrirsætunni Angela Lindvall í skónum og með frábæra fylgihluti, töskurnar eru bara flottar!!!
myndir: Jimmy Choo / Terry Richardson
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.