Í vikunni sem er að líða tilkynnti NBC sjónvarpsstöðin að Jillian Michaels muni ekki snúa aftur í 16. þáttaröðina af þáttunum vinsælu.
Jillian vildi hætta eftir síðustu þáttaröð eftir að sigurvegarinn, Rachel Frederickson, missti óeðlilega mikla líkamsþyngd í þáttunum.
Jillian hafði miklar áhyggjur að ekki væri fylgst nógu vel með heilsu keppenda.
Þetta er í þriðja sinn sem Jillian hættir í þáttunum. Sjáum hvað hún heldur þetta út.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.