Söngkonan Jessie J ætlar ekki að safna hári í bráð, hefur nóg að gera við að taka upp nýjustu plötuna sína og er ekki að leita að kærasta.
Jessie segir í nýlegu viðtali við Glamour að hún sé háð starfi sínu sem söngkona, hún reyni að vera góð dóttir, góð vinkona, vill vera góð systir og góður vinur líka.
Hún segir einnig að hún viti að hún eigi góða og sanna vini því þegar hún fer í upptökur þá er hún yfirleitt í sínum eigin hugarheimi í sirka þrjá mánuði og þegar hún er búin að taka upp eða búin með það verkefni sem hún var að vinna að þá mætir hún til vina sinna og allt er eins og áður.
Hún er þó ekki að leita að kærasta um þessar mundir en draumaprinsinn hennar þarf að vera einhver sem metur hana eins og hún er en í augnablikinu hefur hún skóna sína, hundinn sinn og plötuna sem hún er að vinna að.
Söngkonan rakaði af sér hárið í beinni útsendingu fyrir góðgerðarmál á dögunum. Hún segir að hún ætli að njóta þess að vera með rakað hár í smátíma og virða það að hárið fékk að fjúka fyrir gott málefni.
Jessie finnst það mikill munur að raka af sér hárið og byrja síðan að safna aftur eftir fimm minútur eða bara hreinlega njóta þess að vera með stutt og rakað hár og vera töff!
Það verður gaman að heyra nýtt efni frá þessari mögnuðu söngkonu bráðlega!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig