Jessica White er 25 ára gömul fyrirsæta sem oft hefur verið nefnd hin nýja Naomi Campbell – við skulum þó vona að hún sé ekki eins í skapinu!
Jessica hefur starfað sem fyrirsæta síðan hún var 16 ára og hefur m.a birst í blöðum eins og Teen Vogue, Harper’s Bazaar og Sports illustraited – hún hefur einnig verið með í hinum vinsælu Victoria’s Secret tískusýningum.
Persónulega þykir mér Jessica alveg standast samanburðinn við Naomi! Hún er með svo fullkomið andlit og líkaminn er ekki verri! Ef eitthvað er finnst mér hún fallegri en Naomi, ferskari og sérstakari í útliti. Við eigum örugglega eftir að sjá mikið af henni í framtíðinni.
Þess má geta að Naomi hefur greinilega heyrt þessar sögusagnir um að Jessica sé arftaki hennar því hún harðbannaði Jessicu að koma í afmælið sitt… drama drama drama !
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.