Ég er nú ekki stærsti aðdáandi Jessicu Simpson en ég verð að viðurkenna að ég kann að meta nýjustu skólínuna hennar…
…þar er mikið um himinháa hæla og platforms.
Mér þykja skórnir með tréhælnum sérstaklega flottir en þeir eru svolítið “seventís”. Þessir skór urðu strax mjög vinsælir á netinu og seldust fljótlega upp í svörtu og brúnu en þeir eru fáanlegir í þremur litum.
Skórnir hennar Jessicu eru líka á sanngjörnu verði sem er ekki verra, kosta yfirleitt á bilinu 80-110 $.
Skóna má til dæmis nálgast hér, hér og hér.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.