Söngkonan Jessica Simpson ákvað að birta ekki sjálf fyrstu myndirnar af syni sínum Ace heldur bauð hún tímaritinu People að kaupa þær og birta fyrir “nokkrar” milljónir!
Jessica á fyrir eina stúlku, Maxwell, en hún hefur ekki farið leynt með að hún hafi alls ekki ætlað sér að vera ólétt strax aftur en það eru þrettán mánuðir á milli systkinanna og því eru þau það sem kallað er írskir tvíburar, en svo heitir það þegar undir einu og hálfu ári er á milli barna.
Jessicu finnst meðganga erfið. Hún bætti töluvert á sig þegar hún var ólétt af Maxwell og hlaut mikla gagnrýni fyrir það af slúðurpressunni. Svo var hún lítið búin að jafna sig eftir fyrri meðgönguna þegar hún varð ólétt af Ace eða aðeins fjórum mánuðum eftir að hún eignaðist litlu dömuna. Bæði systkinin fæddust með keisara.
Söngkonan segir það vera mikið ævintýri að vera með tvö börn: “Það er alltaf nóg að gera og þú veist aldrei hvað næsti dagur býður uppá.”
Jessica segir að hún fíli það í botn að vera mamma og þetta er hlutverk sem hún elskar.
Það verður nóg að gera hjá Jessicu á næstunni… ætli hún taki því rólega og komi sér í form hægt og á heilbrigðan máta eða skyldi hún fara all inn og taka Hollywood pakkann á þetta?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig