Jessica Simpson hefur tekið þá ákvörðun að vera talskona megrunarrisans “Weight Watchers” núna aftur eftir seinni meðgönguna sína.
Söngkonan átti sitt annað barn fyrr á þessu ári og var á samning hjá Weight Watchers þegar hún varð ólétt aftur. Að verða ólétt var samt alls ekki á planinu hjá henni þannig að rifta þurfti samningnum því þeir vilja ekki stuðla að því að konur séu að megra sig á meðan þær ganga með barn.
Jessica sagði í viðtali á dögunum að hún væri ein af þeim konum sem fitnaði á meðgöngunni. Hún sé þannig gerð að bæta vel á sig á meðgöngu og brjóstin yrðu hrikalega stór. Hún segist ekki ráða við hvernig færi en sagði þó einnig að ef maður á ekki að njóta sín að borða hvað sem er á meðgöngu þá gerði maður það aldrei. Hún sagðist því hafa verið dugleg að fá sér kleinuhring og annað gotterí á meðan á meðgöngunni stóð.
Jessica vill einnig koma sér í gott form fyrir brúðkaup hennar og unnustans en opinber dagur hefur ekki verið gefinn upp. Jessica segist þó vilja líta vel út á brúðkaupsdaginn og ætlar að fara “all in” eins og er sagt þegar dömur ætla sér að missa meðgöngukílóin. Kannski að Jessica vilji koma sér aftur í Dukes of Hazard formið aftur?
Já! Jessica ætlar greinilega að nýta alla þá aðstoð sem hinir frægu hafa til þess að grenna sig og líta sem best út en söngkonan er þekkt fyrir það að segja síns skoðun og það verður gaman að fylgjast með því sem hún á eftir að segja í viðtölum um hinn “nýja lífstíl”.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig