Fegurðardísin, söngkonan og hönnuðurinn Jessica Simpson sagði frá því nýlega að hún hefði létt sig um 22 kíló frá því að hún fæddi annað barn sitt, Ace Knut.
Daman gerðist talskona Weight Watchers, eða Vigtarráðgjafanna eftir að hún fæddi drenginn sem er núna 10 mánaða en hún hefur lengi verið áberandi í slúðurpressunni fyrir að bæta á sig og léttast á víxl.
Ekki minnkaði svo áhuginn þegar hún varð barnshafandi ákaflega fljótlega eftir að hún fæddi dótturina Maxwell og grannt var fylgst með því hvort hún bætti á sig eða ekki.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jessica gerist talskona fyrir megrunarkúra en hún hefur áður verið andlit fæðubótaefna og allir sperra eyrun þegar hún tjáir sig um leiðir til að léttast.
Á Laugardaginn sem leið fór hún út að borða með fjölskyldunni og um hana sátu papparassarnir sem náðu þessum myndum. Með henni eru Eric Johnson eiginmaðurinn og Maxwell dóttir þeirra sem verður bráðum tveggja ára.
Það er óhætt að segja að Jessica ber sig vel og lítur vel út enda hreyfir hún sig daglega og borðar hollan mat samkvæmt ráðleggingum ráðgjafanna frægu en þú getur lesið meira um þessar leiðir HÉR hjá íslensku Vigtarráðgjöfunum.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.