Stjörnurnar eru þekktar fyrir það að fara óhefðbundnar leiðir þegar kemur að því að grennast og hin íðilfagra Jessica Alba er þar engin undantekning.
Jessica er í betra formi núna en nokkru sinni áður en segist þó vera mjög meðvituð um líkamann sinn og ekki alltaf ánægð með það hvernig hann lítur út. Eftir að hún átti seinni dóttur sína ákvað hún að nota mjög óhefðbundna aðferð til þess að grennast.
Jessica var í tvöföldum aðhaldsfatnaði alla daga en við sem höfum gengið í þannig flíkum vitum að þannig fatnaður er ekki sá þægilegasti. Jessica gerði þetta ekki í einn dag eða svo, nei nei- heldur í ÞRJÁ mánuði! Já þrír mánuðir í sveittum og þröngum aðhaldfatnaði til þess að koma sér í tip top form á stuttum tíma.
Leikkonan viðurkennir þó að þetta hafi alls ekki verið þægilegt og að þessi aðferð sé alls ekki fyrir allar konur, henti jafnvel örugglega fáum. Orðrómur hefur einnig verið á kreiki að Jessica hafi látið frysta fitu sem safnast fyrir á “leiðinlegum” stöðum til þess að hjálpa líkamanum að tóna sig.
Jessica er öll í heilsunni, borðar aðeins lífrænt ræktað og umhverfisvottað og vill helst ekki borða neitt annað en “hreinan” mat.
Já, það er mikið á sig lagt fyrir lúkkið í Hollywood… og víðar.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig