Jenny McCarthy og Donnie Wahlberg vilja lítið brúðkaup.
Jenny, sem er leikkona og fyrrum Playboy-gella, segir parið ekki vilja stórt brúðkaup þar sem þau hafa bæði verið gift áður en Jenny og Donnie trúlofuðu sig í apríl á þessu ári.
„Við munum halda lítið brúðkaup á virkilega fallegum stað og við viljum gera þetta rétt í þetta sinn. Við höfum bæði verið gift áður og við viljum hafa þetta sérstakt. Þetta verður síðasta brúðkaupið.“
Fyrir þá sem ekki vita er Donnie einn af meðlimum New Kids on the Block.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.