Jennifer Love Hewitt hefur farið á kostum í þáttunum “The Client List” undanfarin misseri en þar kemur hún afar fáklædd fram.
Leikkonan hefur loksins fundið hamingjuna og tilkynnt að hún sé ófrísk OG trúlofuð. Unnusti hennar er samleikari úr þáttunum en hann heitir Brian Hallisay.
Parið hefur farið afar leynt með sambandið sitt en þau hafa verið saman í um átta mánuði og eru hreinlega að springa úr gleði þessa dagana en Brian bað Jennifer núna í maí síðastliðnum þegar þau voru á ferðalagi í Evrópu.
Gleðifréttir úr glysborginni! Það virðast nánast allar vera óléttar núna en það líður varla sú vika nema að það komi einhver og tilkynni óléttu í Hollywood. Stjörnubarnalán!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig