Jennifer Lopez og Marc Anthony hafa loksins fengið lögskilnað.
Hjónabandi þeirra til sjö ára lauk loksins í vikunni þegar það var tekið fyrir dóm, næstum því þremur árum eftir að þau hættu að búa saman.
Marc sótti um skilnað frá Jennifer í apríl árið 2012 en þau hættu að búa saman árið 2011. Það tók ekki stjörnurnar langan tíma að finna ástina að nýju en Jennifer byrjaði með Casper Smart vorið 2012 og Marc byrjaði með Shannon De Lima.
Marc endaði þó samband sitt og Shannon ári síðar og byrjaði með Chloe Green en það samband endaði fyrr á þessu ári.
Það sama má segja um samband Jennifer og Casper en það samband endaði fyrir stuttu síðan og hún á að vera komin með nýjan í takið.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.